Heilsufélag Reykjaness

    Heilsufélag Reykjaness

    Sveitarfélögin Garður, Sandgerði, Reykjanesbær og Vogar auk Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Bláa Lónsins og Keilis – Miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs eru hluthafar að Heilsufélagi Reykjaness. Félagið er stofnað um uppbyggingu á heilsutengdum tækifærum á Reykjanesi. Meginmarkmið félagsins er að skapa 300 störf á heilbrigðissviði á Reykjanesi.

    Heilsufélag Reykjaness er stofnað á grunni þeirra tækifæra sem Reykjanes býr yfir á sviði heilsu og vellíðunar. Markmið félagsins eru fólgin í markaðssetningu Íslands sem lands hreysti, fegurðar og heilsu. Heilsutengd ferðaþjónusta mun leiða til aukinnar fjölbreytni atvinnulífs á Reykjanesi, skapa ný störf og auknar gjaldeyristekjur.

    Heilsufélag Reykjaness mun stefna að því að:

    • Skapa 300 störf á heilbrigðissviði á Reykjanesi á næstu þremur árum
    • Stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi á Reykjanesi
    • Stuðla að uppbyggingu heilsuþorps á því svæði sem áður hýsti starfsemi á vegum bandaríska varnarliðsins á Íslandi
    • Standa vörð um fjölbreytni og gæði í heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Reykjaness
    • Efla rannsóknar- og vísindastarf á Reykjanesi
    • Efla menntun og þjálfun á Reykjanesi
    • Að koma á samstarfi við virtar erlendar heilbrigðisstofnanir
    • Að koma á samstarfi við rannsóknaraðila frá virtum háskólum
    • Efla lýðheilsu í gegnum virkar rannsóknir og forvarnaraðgerðir
    • Stuðla að innflæði gjaldeyris í íslenskt samfélag
    • Stuðla að styrkingu ímyndar Íslands sem lands hreystis, fegurðar og heilsu
    • Stuðla að tækifærum fyrir sérhæfðar heilsulausnir fyrir erlendra viðskipavina á Íslandi
    • Stuðla að þjálfun sérfræðinga og annars starfsfólks í veitingu sérhæfðra heilsulausna
    • Þróa nýjar námsleiðir í samstarfi við Keili og aðrar menntastofnanir
    • Stuðla að þróun og innleiðingu gæðakerfa fyrir heilbrigðisþjónustu

    Félaginu er ekki ætlað að vera rekstraraðili heldur mun það leita eftir og stuðla að samningum við einkaaðila og stofnanir um framkvæmd á ákveðnum verkefnum sem miða að því að ná ofangreindum markmiðum.

    Í stjórn félagsins eru: Árni Sigfússon, Grímur Sæmundsen, Oddný Harðardóttir, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Hjálmar Árnason, Róbert Ragnarsson og Kjartan Eiríksson.

    Nánari upplýsingar um Heilsufélag Reykjaness má finna hjá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar í síma 425-2100 og netfang: fyrirspurnir@kadeco.is