Stórglæsileg fjölnota íþróttamiðstöð er rekið á Ásbrú í Reykjanesbæ. Miðstöðin er einstök í sinni röð er fjölbreytni og möguleika varðar.

Miðstöðin er opið alla virka daga 07:00 - 20:00 og laugardaga 09:00 - 12:00. Brugðist verður vel við séróskum fyrir hópa, íþróttafélög eða vinnustaði. Frá júni og út ágúst er miðstöðin opið 08:00 - 20:00 virka daga og laugardaga 09:00 - 12:00.

Síminn hjá Íþróttamiðstöðinni á Ásbrú er 421 8070
Tölvupóstur er: ithrotta.keilir@simnet.is

Aðstaða í íþróttahúsi

Aðalsalurinn

Stór glæsilegur salur þar sem hægt er að spila handbolta, fótbolta, körfubolta, blak, badminton, boccia ofl. Salurinn er líka kjörinn til námskeiðahalds og fjölmennari fundarhalda. Hægt er að skipta salnum í tvennt þannig að fleiri en einn hópur geti notað salinn í einu. 


Veggtennissalir

Í húsinu eru tveir löglegir veggtennissalir sem nýlega voru teknir í gegn. Vinsældir veggtennis eða skvass hafa aukist gríðarlega bæði hér á Íslandi og erlendis undanfarin ár, bæði vegna þess hversu skemmtilegt það er, en líka hversu góð hreyfing skvass er fyrir alla vöðva líkamans. Auk þess eru tveir aðrir salir í sömu stærð sem hægt er að nota undir eróbik, jóga, körfubolta, karate ofl. 


Lyftingarsalur

Vel búinn lyftingarsalur er í húsinu.Tækin er í góðu ásigkomulagi og henta öllum vel sem vilja styrkja á sér kroppinn og vera í góðu líkamlegu formi. Hægt er að fá kennslu á tækin og prógram til að lyfta eftir. 


Upphitunarsalur

Rúmgóður salur með hlaupabrettum, hjólum, stigvélum, dýnum og boltum til að gera maga og teygjuæfingar auk sippubanda til upphitunar fyrir æfingu eða til að slaka á og teygja eftir æfingu. 


Yoga, eróbik, danssalur

Stórskemmtilegur parketlagður salur með góðri lýsingu og speglum er á efri hæð hússins þar sem hægt er að stunda allt milli himins og jarðar en myndi henta sérstaklega vel í yoga, eróbik, dans, bardagaíþróttir eða annað þess háttar. Taekwondo félag Reykjanesbæjar æfir í salnum.


Sauna

Þægilegir saunaklefar eru í búningsklefum beggja kynja í húsinu þar sem gott er að hvílast og slaka á eftir erfiða æfingu. 


Fyrir hvern hentar húsið? 

Mannflóran sem stundar húsið núna er á öllum aldri eða allt frá átta ára aldri til fólks á níræðisaldri. Maður er aldrei of gamall til að hreyfa sig. Góð hreyfing skilar sér sjálfkrafa í betri líðan og meiri orku til að starfa. 


Óvissuferðir, vinnustaðir, hópar, íþróttafélög

Hjá Íþróttahúsinu er boðið upp á þjónustu og aðstoð við að skipuleggja leiki og æfingar. Íþróttavellir henta sérstaklega vel hópum, vinnustöðum og íþróttafélögum til að koma og stunda æfingar eða koma sér til skemmtunar og afþreyingar. Hægt er að fá gistingu á Ásbrú en einnig er ýmis afþreying hér í næsta nágrenni fyrir hópa sem eru í óvissuferð og vilja koma hér við í leiðinni og hrista á sér skankanna og komast í sturtu.