Í Eldey er eitt stærsta og glæsilegasta frumkvöðlasetur landsins og setrið þjónar Suðurnesjunum öllum. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar starfrækir frumkvöðlasetrið í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og í samvinnu við fjölda aðila á Suðurnesjunum. Húsnæðið er í heild 3.300 fermetrar og skiptist það í kennslu- og fyrirlestrarrými, og skrifstofu- og smiðjuaðstöðu fyrir frumkvöðlafyrirtæki.

Í sumar standa yfir endurbætur á húsnæði Eldeyjar, og mun starfsemi hefjast aftur af krafti með haustinu. Boðið verður upp á handleiðslu fyrir frumkvöðla, ýmis námskeið og fræðsludagskrá, auk mjög hagstæðrar leigu á vinnurými. Fylgist með og takið þátt þegar starfsemin hefst í haust.

Þangað til, ef þú vilt frá frekari upplýsingar, eða hefur áhuga á því að vinna í Eldey eða með okkur, vinsamlegast hafið samband við Þórönnu K. Jónsdóttur, verkefnastjóra frumkvöðlamála, thoranna@kadeco.is