

Eldvörp er fyrirtækjahótel á Ásbrú sem opnaði vorið 2009.
Hugmyndin á bak við Eldvörp er að á Ásbrú sé ávallt til reiðu húsnæði fyrir frumkvöðla og áhugaverð fyrirtæki sem vilja starfa að uppbyggingunni á Ásbrú.
Eldvörp eru 1.750 fermetrar sem skiptist í skrifstofueiningar fyrir fyrirtæki, 40 fermetra sameiginlegt fundarherbergi auk tveggja smærri fundarherbergja, 100 fermetra fyrirlestrasal, sameiginlega salernisaðstöðu og kaffistofu. Rýmin í Eldvörpum eru frá 20 fermetrum upp í 160 fermetra. Hægt er að skipta rýmum niður eða sameina eftir þörfum leigjenda.
Hugmyndafræði Eldvarpa kemur frá vísindagörðum á Norðurlöndum þar sem frumkvöðlafyrirtæki hafa aðstöðu með stoðfyrirtækjum á borð við verkfræðifyrirtæki og auglýsingastofur. Samvera þessarra aðila skapar umhverfi þar sem frjóar hugmyndir skapast og finna sér farveg, og tengslanet aukast og styrkjast.
Ef þú hefur áhuga á því að leigja aðstöðu í Eldvörpum, hafðu samband við Þórönnu K. Jónsdóttur, verkefnastjóra, thoranna@kadeco.is
Hér má sjá bækling um Eldvörp.
Eftirfarandi fyrirtæki eru í dag staðsett í Eldvörpum:
| Fyrirtæki |
Þjónusta | Sími | Netfang | ||
![]() |
Altech | Verkfræðiráðgjöf | 856 2301 | jhm@altech.is | |
![]() |
Atmos | Upplýsingatækni | 420 5800 | atmos@atmos.is | |
| Bókhaldsstofan Árgerði | Fjármálaþjónusta | ||||
|
Icelandic Water line |
Nýsköpun | kjartan@iwl.is | |||
| Icelava | 426 8010 | info@icelava.is | |||
![]() |
Moon | Hugbúnaðargerð | 866 9222 | erlingur@themoon.is | |
![]() |
OMR | Verkfræðistofa | 891 9771 | omr@omr.is | |
|
Ráð mennt |
|||||
![]() |
Skissa | Auglýsingastofa | 860 5480 | skissa@skissa.net | |




