Um Ásbrú
Ásbrú er nýtt nafn á þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á fyrrum varnarsvæði Nató við Keflavíkurflugvöll. Þegar bandaríski herinn yfirgaf varnarsvæði sitt eftir 60 ára veru þá var sérstakt félag, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf., eða Kadeco, stofnað til að koma varnarsvæðinu í borgaraleg not og er það í eigu forsætisráðuneytisins.
Markmið og tilgangur Kadeco er að leiða þróun og umbreytingu á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til borgaralegra nota. Í því felst meðal annars nauðsynleg undirbúningsvinna, svo sem úttekt á svæði og mannvirkjum ásamt þróunar- og vaxtarmöguleikum þess í samráði við þá aðila sem hafa hagsmuna að gæta. Þá annast félagið, á grundvelli þjónustusamnings við ríkið, rekstur, umsjón og umsýslu tiltekinna eigna íslenska ríkisins á svæðinu, þar með talið umsjón með sölu og útleigu eigna, hreinsun svæða, niðurrif mannvirkja og önnur skyld verkefni. Félagið vinnur einnig verkefni sem tengjast úttektum, þróun og umbreytingu á svæðinu.
Eftir brottför bandaríkjahers hóf fólk að nota mörg mismunandi nöfn til þess að lýsa svæðinu, þar á meðal Gamla varnarsvæðið, Völlurinn, Keilissvæðið og Miðnesheiði. Nafnið Ásbrú mun hjálpa aðilum á svæðinu að hafa skýrt auðkenni til að kenna sig við.
Uppruni nafnsins
Ásbrú er brúin sem goðin byggðu milli Miðgarðs og Ásgarðs og sést frá jörðu sem regnbogi. Annar endi Ásbrúar er á himni, hjá Himinbjörgum þar sem Heimdallur býr.
Ásbrú er mjög sterklega byggð, hún mun þó brotna í Ragnarrökum þegar Múspellssynir ganga yfir hana. Samkvæmt norrænni goðafræðinni þá er rauði liturinn í regnboganum (Ásbrú) eldur sem brennur á himni. Eldurinn varnar því að hrímþursar og bergrisar gangi upp brúna.
Á hverjum degi ríða æsir eftir Ásbrú til urðarbrunns þar sem er dómsstaður goðanna. Urðarbrunnur stendur undir rót Asks Yggdrasils. Við Urðarbrunn eru nornirnar Urður, Verðandi og Skuld. Þór getur hins vegar ekki farið eftir Ásbrú til að komast á dómsstað. Hann þarf að vaða miklar ár til að komast á leiðarenda.
Í Gylfaginningu segir um þetta:
21. Körmt ok Örmt
ok Kerlaugar tvær,
þær skal Þórr vaða
hvern dag
er hann dœma ferr
at aski Yggdrasils,
þvíat Ásbrú
brennr öll loga,
en heilug vötn flóa.