300 Ný störf skapast á Reykjanesi

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar (Kadeco) hefur í samstarfi við Iceland Healthcare ákveðið að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á sjúkrahúsinu að Ásbrú, í Reykjanesbæ. Sjúkrahúsið mun bjóða upp á sérhæfðar meðferðir fyrir útlendinga og búist er við að 2-300 ný störf geti skapast í tengslum við starfsemina. Alls verða þrjár skurðstofur og 35 legurými í húsinu og hægt að taka á móti allt að 4.000 sjúklingum á ári. Í fyrstu er þó stefnt að því að fjöldi sjúklinga verði um 2.000 og þeir fyrstu komi á öðrum ársfjórðungi 2011. Árlegar tekjur af starfseminni geta numið allt að 3,5 milljörðum króna á ári.
Góð aðstaða og þekking í Reykjanesbæ
Fyrirhugað er að nýta gamla hersjúkrahúsið að Ásbrú en ráðist verður í umfangsmiklar endurbætur á því undir stjórn Kadeco. Framkvæmdir við sjúkrahúsið munu hefjast á öðrum ársfjórðungi. Jafnframt verður notast við íbúðarhúsnæði á svæðinu fyrir sjúklinga og aðstandendur. Val á staðsetningu starfseminnar réðst af miklu leiti af þeirri miklu þekkingu og reynslu af þjónustu við erlenda ferðamenn sem er á svæðinu og mun nýtast vel við ýmsa tengda þjónustu.
Verðmætasköpun fyrir íslenskt samfélag
Algengt er að erlendir sjúklingar sem sækja sjúkraþjónustu utan heimalands ferðist með aðstandendum og dvelji jafnvel í nokkra daga eftir meðferð. Umtalsverðar gjaldeyrisstekjur geta því skapast þessu tengt og má ætla að árlega rekstrartekjur af starfseminni geti numið allt að 3,5 milljörðum króna á ári. Þá eru ótaldar tekjur af ferðatengdri starfsemi og tengdri þjónustu. Talið er 2-300 störf muni skapast við endurbyggingu, starfsemi sjúkrahússins og afleidd störf á svæðinu vegna ýmissrar þjónustu.
Útlendingar sækja læknisþjónustu í auknu mæli utan heimalands
Undanfarin ár hafa reglur fjölmargra landa innan Evrópusambandsins tekið breytingum, sem gerir fólki kleift að sækja læknisþjónustu utan heimalands. Einstaklingar geta þannig sjálfir ákveðið hvar þeir nýta læknismeðferðir sem greidd er ýmist af tryggingarfélögum, opinberum aðilum eða þeim sjálfum. Í Skandinavíu hefur fjöldi einkarekinna sjúkrahúsa verið starfrækt með góðum árangri.
Iceland Healthcare mun í fyrstu sérhæfa sig í liðskiptaaðgerðum, offituaðgerðum og meðferðum því tengdu. Reynslumiklir stjórnendur verða ráðnir til félagsins og unnið með virtum alþjóðlegum aðilum á þessu sviði, og má þar nefna; Otto Nordhus, Leif Ryd og Bjarne Semb. Í fyrstu mun félagið leggja áherslu á markaðssetningu í Noregi og Svíþjóð en fljótlega einnig á Englandi. Í framtíðinni eru uppi áform um að bjóða jafnframt upp á þjónustu félagsins til Bandaríkjamanna.
Fjármögnun verkefnisins, eignarhald og samstarfsaðilar
Framkvæmdum vegna umfangsmikilla endurbóta á sjúkrahúsinu er stjórnað af Kadeco. Fasteignafélagið Seltún, sem er í meirihlutaeigu Kadeco mun hinsvegar eiga sjúkrahúsið, leigja það til Icelandic Healthcare og sjá um fjármögnun þess hluta verkefnisins. Iceland Healthcare er í eigu Salt Health sem fer með eignarhald á umræddu rekstrarfélagi en kemur ekki með beinum hætti að fjármögnun eða fjárfestingu í endurbyggðu sjúkrahúsi. Salt Health er í meirihlutaeigu Róberts Wessman og Otto Nordhus.
Verkefnið er unnið í góðu samstarfi við Heilsufélag Reykjaness, en að því félagi standa sveitarfélögin í Garði, Vogum, Sandgerði og Reykjanesbæ, auk Keilis, Bláa lónsins og Kadeco. Heilsufélagið hefur það hlutverk að vinna með hagsmunaaðilum að uppbyggingu heilsutengdrar starfsemi á Reykjanesi.