05
    MAÍ 2010

    Kadeco leitar að verkefnastjóra

    Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar óskar eftir að ráða ábyrgan, öflugan og hugmyndaríkan verkefnastjóra til starfa.

    Starfssvið:
    Umsjón og samþætting á frumkvöðlasetrum Ásbrúar og Hugmyndahúsinu Ásbrú
    Ábyrgð á daglegum rekstri
    Samskipti við ráðgjafa og frumkvöðla
    Samskipti og samstarf við Nýsköpunarmiðstöð Íslands

    Menntunar- og hæfniskröfur:
    Háskólamenntun sem nýtist í starfi
    Reynsla af verkefnastjórnun og samningagerð
    Reynsla og/eða þekking á frumkvöðla- og nýsköpunarverkefnum
    Leiðtogahæfileikar
    Mjög góðir skipulagshæfileikar
    Frumkvöðlaeiginleikar

    Ásbrú hefur lagt grunn að störfum við rannsóknir og menntun, störfum er tengjast margskonar frumkvöðlauppbyggingu, hátæknistörf, t.d. við rekstur gagnavers, margs konar iðnaðarstörf auk ýmissa starfa í þjónustu. Í heildina hafa nú um 40 ný fyrirtæki og stofnanir aðsetur á Ásbrú og hafa 450 störf skapast á sl. þremur árum. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar starfrækir á Ásbrú m.a. frumkvöðlasetur, fyrirtækjahótel og hugmyndahús í samstarfi við fleiri aðila.

    Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur það hlutverk að leiða þróun á fyrrum varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli til borgaralegra nota. Þróunarsvæði félagsins ber í dag heitið Ásbrú. Á Ásbrú hefur, á þremur árum verið lagður grunnur að miklum fjölda starfa á svæðinu.

    Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

    Umsjón með ráðningu
    Auður Bjarnadóttir - audur.bjarnadottir@capacent.is
    Tómas Oddur Hrafnsson - Tomas.hrafnsson@capacent.is

    Umsóknafrestur til og með:
    09. maí 2010

    « Til baka