14
    MAÍ 2010

    Sumarstörf hjá Keili

    Það verða nokkur spennandi verkefni í gangi í Keili í sumar.

    Keilir, í samvinnu við Félags- og tryggingarmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýsir eftir umsóknum um störf við tímabundin átaksverkefni á vegum ráðuneyta og undirstofnana þeirra. Störfin eru opin öllum sem eru á atvinnuleysisskrá og námsmönnum sem eru á milli anna eða skólastiga. Um er að ræða eftirfarandi störf:

    Undirbúningur námskeiða í lögum og alþjóðlegum skuldbindingum á sviði orku
    Undirbúningur, skipulagning og gangsetning Hackerspace
    Hönnun, smíði og uppsetning kennslubúnaðar fyrir verklega kennslu í tæknifræði
    Endurskipulagning námskeiða í tæknifræði
    Undirbúningur og skipulagning námskeiðs í Lego Mindstorm

    Umsóknarfrestur er til 19. maí. Nánari upplýsingar eru að finna á vef Vinnumálastofnunar og á heimasíðu Keilis.

    « Til baka