26
    MAÍ 2010

    Verkefna- og nýsköpunarsjóður Keilis

    Orku- og tækniskóli Keilis hefur í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir komið á fót verkefna- og nýsköpunarsjóði fyrir nemendur skólans. Sjóðurinn mun gefa nemendum tækifæri á að vinna raunveruleg verkefni í samstarfi við atvinnulífið og þar með bæði ýta undir áhuga nemenda á náminu og stuðla að aukinni nýsköpun.

    Meðal verkefna sem verða í boði á þessu ári er hönnun á færslubúnaði fyrir litlar flugvélar, kortlagning lághita jarðhitasvæða á Reykjanesi, úttekt á skilyrði orkufyrirtækja til að uppfylla Svansmerkið og aflmælingar á rafbjögunarsíum. Styrkirnir eru til eins árs og að upphæð 250.000 kr. fyrir hvern nemanda.

    Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á tvær þverfaglegar námsbrautir í tæknifræði á háskólastigi, orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði. Boðið er upp á námið í samstarfi við Háskóla Íslands sem útskrifar nemendur skólans. Kennsla og verklegar æfingar nemenda fara fram í nýuppgerðum kennslustofum á Ásbrú, og er fullkomin aðstaða til rannsókna og tilrauna á skólasvæðinu. Orku- og tækniskóli Keilis leggur áherslu á gagnvirk samskipti við fyrirtæki og raunveruleg nemendaverkefni, sem tryggir tengsl nemenda við framþróun og vinnubrögð í atvinnulífinu. Verkefna- og nýsköpunarsjóður Keilis mun efla þetta samstarf enn frekar í framtíðinni.

    Nánari upplýsingar á heimasíðu Orku- og tækniskóla Keilis: http://www.keilir.net/orka-og-taekni

    « Til baka