02
    JÚN 2010

    Nytjagarðar á Ásbrú

    Á örskömmum tíma hefur verið komið upp nytjagörðum á Ásbrú. Staðsetningin er í skeifunni á bak við Langbest og Samkaup. Þeir hafa fengið nafnið Freysgarðar enda Freyr frjósemisgoð og staðurinn er á Ásbrú.   Keilir í samstarfi við Reykjanesbæ, Kadeco og Háskólagarða standa að þessum görðum til að auka þjónustu við íbúa á Ásbrú. Þetta er tilraun í sumar og er gjaldfrjáls. 30-40 reitir eru merktir. Við hliðina á görðunum er myndarlega hrúga lífræns áburðar. Fólki er frjálst að taka sér áburð til notkunar í Freysgörðunum. Til að fá úthlutað reit geta íbúar á Ásbrú snúið sér til Keilis, tölvupóstur: jofridur@keilir.net. Hver og einn er ábyrgur fyrir sínum reit með alla umhirðu. Aðgengi að rennandi vatni er á staðnum.

    Fyrstur kemur – fyrstur fær. Góða uppskeru.

    « Til baka