Ásbrú lífsgæði

    Keilir, Háskólavellir, Kadeco og Reykjanesbær standa að uppbyggingu þekkingarsamfélags á Ásbrú og þar eru nú búsettir tæplega 2000 íbúar í 700 íbúðum á stúdentagörðum.

    Keilir hefur milligöngu um útleigu á íbúðunum og þær fyrstu fóru í útleigu í ágúst 2007. Boðið er uppá afar hagstætt leiguverð og allir nemar íslenskra háskóla eiga aðgang að þeim, uppfylli þeir skilyrði um námsframvindu. Innifalið í leiguverði er hiti, rafmagn, nettenging og strætisvagnar með nettengingu milli svæðisins og háskóla á höfuðborgarsvæðinu. 

    Ásbrú býður uppá skemmtilegt umhverfi sem hentar bæði einstaklingum sem fjölskyldufólki. Á svæðinu er góð aðstaða til útivistar. Íbúar Ásbrúar hafa bæði aðgang að leiksvæðum fyrir börnin sem eru afar vel búin leiktækjum og opnum grillsvæðum.

    Á Ásbrú er rekinn grunnskóli, Háaleitisskóli, og er grunnskóladeildin fyrir 1-5.bekk. Áætlað er að efsti bekkurinn haldi áfram næsta vetur og því verður 1-6.bekkur starfrækur næsta vetur, 2009-2010, í Háaleitisskóla.

    Einnig eru starfrækir tveir leiksskólar hér í Ásbrú, annar er heilsuleikskólinn Háaleiti og hinn er hjallastefnuleikskólinn Völlur.
    Félagsmiðstöð 13-16 ára unglinga í Reykjanesbæ, Fjörheimar, er staðsett á Ásbrú. Þar fer fram æskulýðsstarf í samvinnu við alla grunnskóla Reykjanesbæjar í alls um 1.400 fm húsnæði á einni hæð. Þess er vert að geta að í Reykjanesbæ og á Ásbrú er frítt í strætó fyrir alla aldurshópa og frítt er í sund fyrir alla krakka á grunnskólaaldri.

    Á Ásbrú er einnig Langbest, fjölskylduvænn veitingastaður og kaffihús. Íþróttahús og líkamsræktaraðstaða opnuðu í desember 2007 og geta íbúar á Ásbrú nýtt sér þá aðstöðu gegn vægu gjaldi. Í mars 2009 opnaði svo hársnyrtistofan Fimir fingur í sama húsnæði og Langbest og Samkaup Strax.
    Listasmiðjan, þar sem menningar- og tómstundahópar í Reykjanesbæ hafa aðstöðu sína, er staðsett á Ásbrú, við hlið þjónustukjarnans að Keilisbraut 773.
    Nýlega var hin víðfrægi Officeraklúbbur á Ásbrú opnaður og eru haldnir dansleikir þar ca. 1-2 í mánuði.
    Tvöföld Reykjanesbraut gerir allar samgöngur við höfuðborgarsvæðið auðveldar og öruggari og aðeins er um 20 mín. akstur frá Ásbrú í Hafnarfjörð.

    Ef þú hefur áhuga á því að leigja íbúð, farðu á www.keilir.net.

    LÍFSGÆDI

    Næstu viðburðir

    10. mar. 2010 kl.21:00

    Uppistand á Top of the Rock

    13. mar. 2010 kl.23:59

    90's Partý á Toppnum

    22. apr. 2010 kl.08:00

    Opinn dagur á Ásbrú