Menntun

    Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs var stofnaður vorið 2007. Skólinn hefur aðsetur á Ásbrú. Keilir byggist upp á fjórum mismunandi skólum auk Háskólabrúar þar sem undirbúningsnám fyrir háskólanám fer fram. Skólarnir eru Heilsu- og uppeldisskóli, Orku- og tækniskóli, Samgöngu- og öryggisskóli og Skóli skapandi greina. Hver þeirra hefur sínar áherslur í samræmi við markmið Keilis að byggja á mikilvægi alþjóðaflugvallar og umhverfisvænum auðlindum en jafnframt að nýta þá þekkingu sem er til staðar í nærumhverfinu. Keilir er hlutafélag, meðal eigenda eru Háskóli Íslands, rannsóknarstofnanir, orku- og fjármálafyrirtæki, sveitarfélög, almenningssamtök og verkalýðsfélög.

    Heilsu- og uppeldisskóli

    Heilsu- og uppeldisskóli Keilis leggur áherslu á að þróa og bjóða uppá framúrskarandi nám á sviði heilsu, heilbrigðis, íþrótta- og uppeldisfræða. Nú þegar er kennd við skólann ÍAK einkaþjálfun og leikskólabrú fyrir ófaglærða starfsmenn leikskóla. Aðstaða nemenda til náms og þjálfunar er afar góð en kennsla fer fram í Íþróttaakademíu Keilis sem er nýtt kennslu- og íþróttahús.

    Orku- og tækniskóli

    Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á þverfaglegt nám í orkutæknifræði og mekatróník tæknifræði (e. mechatronics) í samstarfi við verkfræðideild Háskóla Íslands, verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstöðu í orkufræðum hjá Orku- og tækniskóla Keilis. Áhersla er lögð á að mennta sjálfstæða nemendur sem búa yfir mikilli greiningarhæfni, verkþekkingu og færni til að skapa og þróa nýjar tæknilausnir. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur skólans verði eftirsóttir starfskraftar fyrir bæði íslenskan sem og erlendan orku- og tækniiðnað. Hjá Orku- og tækniskólanum er boðið upp á nám frumkvöðlanám í samstarfi við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

    Samgöngu- og öryggisskóli

    Samgöngu og öryggisskóli, skiptist í Flugakademíu og Öryggisakademíu. Flugakademía Keilis býður upp á fjölbreytt nám í flugtengdum greinum svo sem einka- og atvinnuflugnám, flugrekstrarnám, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn. Í Öryggisakademíu er boðið upp á sjúkraflutninganám og ýmis námskeið einnig er unnið að þróun náms í öryggisþáttum í víðustu merkingu þess orðs. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til þess að skapa frábæra aðstöðu bæði til kennslu flugtengdra greina og öryggisfræða.

    Háskólabrú

    Háskólabrú Keilis er samstarfsverkefni Keilis og Háskóla Íslands og býður deildin upp á aðfararnám á vegum HÍ fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla nemendur almenn inntökuskilyrði flestra innlendra háskóla og telst námið almennt sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis, HÍ og menntamálaráðuneytisins. Markmiðið með náminu er að nemendur verði vel undirbúnir undir krefjandi háskólanám bæði hérlendis og erlendis.

    Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Keilis: www.keilir.net