Ásbrú nýsköpun

Á Ásbrú er lögð mikil áhersla á nýsköpun. Það má segja að Ásbrú sé skissubók fyrir athafnaskáld. Hér eru til staðar aðstaða og tæki, en skáldin sjá um að skrifa meistarastykkin. 

Í grunninn má segja að það séu tvær leiðir fyrir frumkvöðla að komast til Ásbrúar.

Sú fyrsta felst í að kaupa eða leigja aðstöðu hjá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þróunarfélagið á fjölda eigna sem það leitast eftir að koma í hagnýt not í samstarfi við öfluga aðila.

Önnur leið er í gegnum Frumkvöðlasetrið á Ásbrú. Starfsemi frumkvöðlasetursins er tvíþætt. Annars vegar er frumkvöðlasetrið Eldey, þar sem frumkvöðlar starfa sem eru að hefja þróun og rekstur. Þar fer fram öflug handleiðsla og fræðsla fyrir alla sem áhuga hafa, allt frá þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref, til þeirra sem hafa lengi stundað fyrirtækjarekstur en vilja bæta við sig þekkingu og færni. Hinsvegar er starfrækt innan setursins 1.750 fermetra fyrirtækjahótel, Eldvörp, þar sem nýsköpunarfyrirtæki búa ásamt stoðfyrirtækjum þeirra.

Nú þegar hafa fjöldamargir frumkvöðlar sest að á Ásbrú. Fyrsta græna gagnaverið á Íslandi á vegum Verne Global mun brátt rísa á Ásbrú. Atlantic Studios reka hér stærsta kvikmyndaver á Íslandi. HBT vinnur að orkusparnaði og svo hefur Jónína Benediktsdóttir hafið rekstur á Detox heilsumeðferðarstöð á svæðinu. Allt eru þetta dæmi um frumkvöðla sem skapa í Ásbrú.