Ásbrú Orka

    Reykjanes hefur á undanförnum áratugum byggt upp gríðarmikla þekkingu á nýtingu á náttúruvænum orkugjöfum. Klasi grænnar orku er þegar til staðar á Reykjanesi en hann samanstendur af fyrirtækjum sem framleiða græna orku, nýta græna orku og bæta nýtingu á orkunni. Ásbrú mun verða vettvangur fyrir stóraukna starfsemi fyrirtækja tengdri grænni orku. Orkuklasi Ásbrúar mun verða einstakur á heimsvísu vegna aðgangs að hreinni orku úr jarðvarmavirkjunum hér á svæðinu.

    Frumkvöðlasetrið Eldey sem er samstarfsverkefni Kadeco, Keilis, Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sérhæfir sig í grænni orku. Eldey er 3.300 fermetra húsnæði sem skiptist í skrifstofuálmu og smiðjuálmu. Í smiðjuálmunni hafa fyrirtækin svæði til þess að vinna að uppfinningum sínum. Nú þegar hafa nokkur efnileg orkufyrirtæki fengið aðstöðu í Eldey og eru fleiri fyrirtæki væntanleg.

    Stærstu og öflugustu orkufyrirtæki landsins eru á meðal eigenda Keilis. Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á þverfaglegt nám í orkutæknifræði og mekatróník tæknifræði (e. mechatronics) í samstarfi við verkfræðideild Háskóla Íslands. Verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstöðu í orkufræðum hjá orku- og tækniskóla Keilis. Áhersla er lögð á að mennta sjálfstæða nemendur sem búa yfir mikilli greiningarhæfni, verkþekkingu og færni til að skapa og þróa nýjar tæknilausnir. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur skólans verði eftirsóttir starfskraftar fyrir bæði íslenskan sem og erlendan orku- og tækniiðnað.