Ásbrú flutningar og samgöngur
Miklir möguleikar tengjast staðsetningu Ásbrúar við Keflavíkurflugvöll og tengingar við stórskipahöfnina í Helguvík. Mjög mikið er þrengt að flestum flugvöllum í Evrópu. Við Ásbrú er hinsvegar mikið svæði í kringum flugvöllinn sem hægt er að þróa fyrir flutningatengda starfsemi. Með þessu móti mætti nýta miðlæga staðsetningu á milli þriggja heimsálfa, Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur mikið landsvæði í kringum Keflavíkurflugvöll til þróunar á flugtengdri starfsemi. Nánari upplýsingar um Þróunarfélagið má finna á www.kadeco.is.
Samgöngu- og öryggisskóli Keilis, skiptist í Flugakademíu og Öryggisakademíu. Flugakademía Keilis býður upp á fjölbreytt nám í flugtengdum greinum svo sem einka- og atvinnuflugnám, flugrekstrarnám, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn. Í Öryggisakademíu er boðið upp á sjúkraflutninganám og ýmis námskeið, en einnig er unnið að þróun náms í öryggisþáttum í víðustu merkingu þess orðs. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til þess að skapa frábæra aðstöðu bæði til kennslu flugtengdra greina og öryggisfræða.
